top of page
Ljóðaspjall- og söngur
Ljóðaspjall- og söngur

Sat, Oct 18

|

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal

Ljóðaspjall- og söngur

Bryndís Guðjónsdóttir, sópran Guja Sandholt, mezzósópran Eva þyri Hilmarsdóttir, píanóleikari

Time & Location

Oct 18, 2025, 12:00 PM – 1:00 PM

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122-124, 113 Reykjavík, Ísland

About the event

Laugardaginn 18. október bjóða Óperudagar og Borgarbókasafnið upp á ljóðaspjall og -söng í Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal. Tilefnið er samstarf tónskáldsins Ingibjargar Azimu Guðlaugsdóttur við skáldin Gerði Kristnýju og Björgu Björnsdóttur. Aðgangur er ókeypis og öllum frjáls meðan húsrúm leyfir.

Skáldin tvö og tónskáldið munu þar rabba saman um tilurð nýrra tónverka sem Ingibjörg samdi við söguljóðið Urtu eftir Gerði Kristnýju sem og fjögur ljóð úr ljóðabókinni Árhringur eftir Björgu Björnsdóttur. Auk spjallsins verða fjórir nýjir dúettar við jafnmörg ljóð úr Árhring flutt af Evu Þyri Hilmarsdóttur, píanóleikara og söngkonunum Bryndísi Guðjónsdóttur og Guju Sandholt. Um frumflutning á tveimur dúettanna er að ræða. Auk þess verður flutt stutt brot úr söguljóðinu Urtu.

Sunnudaginn 19. október og mánudaginn 20. október verður söguljóðið Urta frumflutt í Hafnarhúsinu (Listasafni Reykjavíkur) og er viðburðurinn liður í að vekja athygli á þeim stórviðburði í íslensku tónlistarlífi.

Við hvetjum alla ljóða- og tónlistarunnendur til að fjölmenna, spjalla saman um ljóð og hlýða á fallega nýja tónlist. Svo er auðvitað tilvalið að skella sér í sund í sundlauginni í Úlfarsdal fyrir eða eftir viðburðinn!

Share this event

© Eva Þyri Hilmarsdóttir 2025
evathyri@gmail.com

EVA THYRI HILMARSDOTTIR

PIANIST
Headshots: Steinunn photography and music
bottom of page